Birkir byrjar gegn Arsenal

Birkir Bjarnason á fleygiferð með Basel í leik liðsins gegn …
Birkir Bjarnason á fleygiferð með Basel í leik liðsins gegn Ludogorets í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu. AFP

Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, er í byrjunarliði Basel sem mætir Arsenal í annarri umferð A-riðils í Meistaradeild Evrópu á Emirates í kvöld. 

Birkir lék allan leikinn þegar Basel gerði 1:1 jafntefli gegn Ludogorets á St. Jacob's Park, heimavelli Basel, í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Arsenal gerði 1:1 jafntefli gegn PSG í hinum leiknum í fyrstu umferð A-riðilsins og staðan er því hnífjöfn fyrir aðra umferðina sem leikin verður í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert