Glæsilegt mark hjá Locatelli (myndskeið)

Manuel Locatelli fagnar marki sínu.
Manuel Locatelli fagnar marki sínu. AFP

Glæsilegt mark frá Manuel Locatelli tryggði AC Milan langþráðan sigur gegn Ítalíumeisturum Juventus í gærkvöld.

Locatelli skoraði eina mark leiksins með þrumufleyg á 65. mínútu og í fyrsta skipti í tíu viðureignum liðanna hrósaði AC Milan sigri.

AC Milan komst með sigrinum upp í annað sætið og er tveimur stigum á eftir Juventus, sem stefnir á að verða meistari sjötta árið í röð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert