Lippi tekinn við Kínverjum

Marcelo Lippi.
Marcelo Lippi. AFP

Ítalinn Marcello Lippi hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Kínverja í knattspyrnu en gengið var frá samningi þess efnis í gær.

Lippi, sem er 68 ára gamall, þekkir vel til í Kína, en hann þjálfaði kínverska liðið Guangzhou Evergrande sem varð meistari þrjú tímabil í röð frá 2012 til 2014.

Vonir Kínverja um að komast á HM í Rússlandi 2018 eru ekki miklar því þeir hafa aðeins innbyrt eitt stig í fjórum leikjum í undankeppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert