Fyrsta tapið hjá Viðari Erni í Ísrael

Viðar Örn Kjartansson í leik með Mabbaci Tel-Aviv.
Viðar Örn Kjartansson í leik með Mabbaci Tel-Aviv. AFP

Viðar Örn Kjartansson og samherjar hans í Maccabi Tel-Aviv töpuðu í kvöld fyrsta leik sínum í ísraelsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Maccabi Tel-Aviv tók á móti Maccabi Haifa og mátti sætta sig við 2:0 tap. Viðar Örn byrjaði á bekknum en var skipt inn á í hálfleik.

Viðar Örn og félagar eru í öðru sæti deildarinnar með 16 stig eins og toppliðið Hapoel Beer Sheva sem er með betri markatölu.

Viðar Örn hefur skorað 3 mörk í deildinni á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert