Rúnar og félagar steinlágu í bikarnum

Rúnar Már Sigurjónsson og félagar eru úr leik í bikarnum.
Rúnar Már Sigurjónsson og félagar eru úr leik í bikarnum. Andy Mueller/freshfocus

Birkir Bjarnason, leikmaður Basel í Sviss, verður eini íslenski leikmaðurinn í 8 liða úrslitum svissneska bikarsins í knattspyrnu, en lið hans vann Tuggen 4:1 í dag. Rúnar Már Sigurjónsson og félagar eru úr leik.

Birkir byrjaði á bekknum hjá Basel í dag en þurfti að koma inn á sem varamaður á 14. mínútu.

Basel vann góðan 4:1 sigur og er því komið áfram í 8 liða úrslitin en sömu sögu má þó ekki segja af Grasshopper.

Rúnar Már var í byrjunarliði Grasshopper en var skipt af velli á 61. mínútu. Grasshopper tapaði fyrir Young Boys með fimm mörkum gegn engu og er liðið því úr leik í bikarnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert