Hver er efiðasti mótherji Ronaldo?

Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. AFP

Portúgalski landsliðsmaðurinn Cristiano Ronaldo, leikmaður Evrópumeistara Real Madrid, hefur upplýst hver sé erfiðasti mótherjinn sem hann hefur þurft að glíma við á lnattspyrnuvellinum.

Sá er Ashley Cole, fyrrverandi leikmaður Arsenal og Chelsea, en hann og Ronaldo áttust oft við þau sex ár sem Ronaldo spilaði með liði Manchester United.

„Í gegnum árum átti ég margar rimmur á móti Ashley Cole. Hann gaf mér ekki sekúndu til þess að anda. Hann var traustur leikmaður þegar hann var upp á sitt besta, fljótur og góður í að tækla. Ég vissi að það yrði aldrei auðveldur leikur á móti honum,“ segir Ronaldo í viðtali við tímaritið Coach Mag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert