Albert Guðmundsson, leikmaður PSV Eindhoven í Hollandi, var á ferðinni með varaliði PSV í fyrstu deildinni í knattspyrnu í kvöld en leiknum lauk með 4:0 sigri liðsins á Achilles 29.
Albert, sem er fæddur árið 1997, er lykilmaður hjá Jong PSV en hann var í byrjunarliði liðsins í kvöld en var skipt af velli á 88. mínutu.
Liðið gerði fjögur mörk gegn engu en Jong PSV er í fjórða sæti deildarinnar með 31 stig.
Albert er einn allra efnilegasti leikmaður landsins en hann var í U21 árs landsliðshópi Íslands á þessu ári.