Arnór Ingvi hetja Rapid Vín

Arnór Ingvi Traustason.
Arnór Ingvi Traustason. AFP

Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason var hetja Rapid Vín þegar liðið vann 1:0 sigur á St. Pölten í austurrísku A-deildinni í knattspyrnu í dag.

Arnór Ingvi skoraði sigurmarkið á 79. mínútu en hann lék allan tímann og auk þess að skora nældi hann sér í gult spjald.

Lið hans lyfti sér þar með upp í 5. sæti deildarinnar með 24 stig úr 18 leikjum, en er talsvert á eftir fjórum efstu liðunum. Altach er með 36 stig, Sturm Graz 33, Salzburg 31 og Austria Vín 31 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert