Norska undrabarnið á leið til Frakklands

Ødegaard í leik með Real Madrid.
Ødegaard í leik með Real Madrid. AFP

Martin Ødegaard, leikmaður Real Madrid á Spáni, er á leið til franska félagsins Rennes á láni en hann verður á láni út tímabilið. Franskir fjölmiðlar greina frá þessu.

Ødegaard, sem er 17 ára gamall, kom til spænska félagsins frá norska liðinu Strømsgodset fyrir 9 milljónir punda en hann var í fyrsta sinn í byrjunarliðinu í 6:1 sigri í bikarnum á dögunum.

Hann hefur verið orðaður við fjölmörg stórlið síðustu vikur en ljóst er að hann þarf að spila meira en varaliðsbolta.

Hann er á leið á lán til Rennes sem leikur í efstu deild í Frakklandi en hann gerir samning út tímabilið. 

Hann og faðir hans fylgdust með Rennes vinna St. Etienne 2:0 í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert