Neymar gaf Barcelona mikilvægt veganesti

Neymar með boltann í kvöld en þeir Aritz Elustondo og …
Neymar með boltann í kvöld en þeir Aritz Elustondo og Xabier Prieto sækja að honum. AFP

Barcelona er með 1:0-forystu eftir fyrri viðureign sína gegn Real Sociedad í átta liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu.

Brasilíumaðurinn Neymar skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 21. mínútu, en leikið var á heimavelli Sociedad. Barcelona er því með mikilvægt útivallarmark á bakinu fyrir síðari viðureignina í næstu viku.

Atlético Madrid er svo í góðum málum í viðureigninni við Eibar, en Atlético vann fyrri leikinn í kvöld 3:0. Antoine Griezmann, Ángel Correa og Kevin Gameiro skoruðu mörkin.

Markaskorararnir Kevin Gameiro og Antoine Griezmann fagna í kvöld.
Markaskorararnir Kevin Gameiro og Antoine Griezmann fagna í kvöld. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert