Real Madrid í meiðslavandræðum

Marcelo meiddist gegn Málaga.
Marcelo meiddist gegn Málaga. AFP

Evrópumeistarar Real Madrid eru í vandræðum vegna meiðsla, en lykilmennirnir Marcelo og Luka Modric spila ekki á næstunni.

Marcelo verður frá í að minnsta kosti fjórar vikur eftir að hafa haltrað af velli í 2:1-sigri á Málaga um helgina. Hann meiddist á hásin eftir aðeins 25 mínútur og gæti því misst af fyrri leik Real gegn Napoli í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næsta mánuði.

Modric meiddist á læri og óvíst er hversu lengi hann verður frá. Þeir félagar bætast því á meiðslalistann sem fyrir innihélt meðal annars Pepe, Dani Carvajal og Gareth Bale.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert