Emil og félagar töpuðu á heimavelli

Emil Hallfreðsson spilaði í dag.
Emil Hallfreðsson spilaði í dag. AFP

Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Udinese sem beið lægri hlut gegn Sassuolo í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag. 

Udinese komst yfir snemma leiks en tvö mörk frá Gregoire Defrel með stuttu millibili tryggðu Sassuolo sigurinn. 

Emil spilaði fyrstu 82 mínútur leiksins og fékk hann gult spjald eftir hálftíma leik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert