Sigurmark Barcelona í blálokin

Lionel Messi skoraði sigurmark Barcelona úr vítaspyrnu.
Lionel Messi skoraði sigurmark Barcelona úr vítaspyrnu. AFP

Neymar og Lionel Messi sáu um að tryggja Barcelona 2:1-sigur á 90. mínútu gegn Leganés í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Messi kom Börsungum yfir strax á 4. mínútu leiksins en Unai López jafnaði fyrir gestina 20 mínútum fyrir leikslok. Undir lok leiksins nældi Neymar í vítaspyrnu og úr henni skoraði Messi annað mark sitt og sigurmark leiksins.

Barcelona er eftir sigurinn með 51 stig, stigi á eftir Real Madrid sem á hins vegar tvo leiki til góða. Real sækir Valencia heim á miðvikudag. Sevilla er í 3. sæti með 49 stig en liðið vann 2:0-sigur á Eibar í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert