Alves hraunar yfir Barcelona

Dani Alves í leik með Juventus.
Dani Alves í leik með Juventus. AFP

Dani Alves, bakvörður Juventus, fer ófögrum orðum um sína fyrrverandi vinnuveitendur hjá Barcelona en Alves yfirgaf Börsunga á frjálsri sölu í sumar eftir átta ára veru.

Hinn 33 ára gamli Alves segir að Barcelona hafi komið fram við sig af óvirðingu og að forsvarsmenn félagsins hafi ekki hugmynd um hvernig eigi að koma fram við leikmenn.

„Síðustu þrjú árin mín hjá Barcelona var alltaf sagt að ég væri á förum, en yfirmennirnir sögðu aldrei neitt við mig. Þeir fóru mjög á bak við mig og sýndu af sér mikið vanþakklæti. Þeir sem stjórna félaginu hafa ekki hugmynd um hvernig á að hafa samskipti við leikmenn,“ sagði Alves.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert