Balotelli í tveggja leikja bann

Mario Balotelli.
Mario Balotelli. AFP

Mario Balotelli, framherji franska liðsins Nice, var í kvöld úrskurðaður í tveggja leikja bann af aganefnd franska knattspyrnusambandsins.

Ítalski skrautfuglinn fékk að líta rauða spjaldið í leik gegn Cyprien um síðustu helgi og á leið sinni út af vellinum gerði hann aðsúg að dómara leiksins. Þetta var þriðja rauða spjald Ítalans á leiktíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert