Túlkar hvert einasta orð þjálfarans - myndskeið

Landsliðsmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason, þá leikmaður Zulte Waregem, í leik …
Landsliðsmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason, þá leikmaður Zulte Waregem, í leik gegn Rubin Kazan í Evrópudeildinni árið 2013. Garcia tók við liðinu 2016. KURT DESPLENTER

Ansi skemmtileg myndband birtist í dag frá æfingasvæði Rubin Kazan í Rússlandi þar sem Spánverjinn Javi Garcia er við stjórnvölinn.

Á myndskeiðinu sést Garcia, sem lék á sínum ferli meðal annars með Real Sociedad og Villareal, ausa úr viskubrunni sínum á spænsku með aðstoðarmann sinn á eftir sér sem túlkar hvert einasta orð, og gerir það ansi vel virðist vera.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert