Wolfsburg rak þjálfarann

Valerian Ismael.
Valerian Ismael. AFP

Þýska knattspyrnuliðið Wolfsburg rak í morgun þjálfara liðsins, Valerien Ismael, úr starfi.

Kornið sem fyllti mælinn hjá forráðamönnum félagsins var 2:1 tap fyrir Werder Bremen á föstudagskvöldið en eftir þann ósigur er Wolfsburg í 14. sæti í þýsku deildinni. Ismael tók við þjálfun Wolfsburg í október á síðasta ári þegar Dieter Hecking var látinn taka pokann sinn.

Wolfsburg hefur hafið þjálfaraleit en næsti leikur liðsins er á móti Mainz á laugardaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert