Sara Björk Gunnarsdóttir og liðsfélagar hennar í þýska liðinu Wolfsburg eru í afar erfiðri stöðu gegn Evrópumeisturum Lyon fyrir seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.
Lyon vann leik liðanna í Þýskalandi í síðustu viku, 2:0, en seinni leikurinn er í kvöld kl. 18.45. Í þýskum miðlum er talað um að Wolfsburg þurfi „kraftaverk“ til að komast áfram, gegn besta félagsliði heims:
„Við sáum það í meistaradeildinni hjá körlunum hverju hægt er að breyta í seinni leiknum,“ sagði þýski landsliðsmarkvörðurinn Almuth Schult, markvörður Wolfsburg, og vísaði til einvígis Barcelona og PSG í Meistaradeild karla. Lyon er ríkjandi Evrópumeistari eftir sigur á Wolfsburg í úrslitaleik í fyrra.