Roma burstaði botnliðið

Leikmenn Roma fagna einu af mörkum sínum í kvöld.
Leikmenn Roma fagna einu af mörkum sínum í kvöld. AFP

Roma minnkaði forskot Juventus í toppsæti ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu niður í átta stig með öruggum 4:1 sigri gegn botnliði Pescara í kvöld.

Mohamed Salah skoraði tvö mörk fyrir Roma og þeir Kevin Strootman og Radja Nainggolan gerðu sitt markið hver en Roma komst í 3:0 með mörkum á 44. 45. og 48. mínútu leiksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert