Arnór Ingvi í bikarúrslitin

Arnór Ingvi í leik með Rapid Vín.
Arnór Ingvi í leik með Rapid Vín. AFP

Arnór Ingvi Traustason og samherjar hans í Rapid Vín leika til úrslita í austurrísku bikarkeppninni í knattspyrnu.

Rapid Vín hrósaði í kvöld sigri gegn LASK Linz, 2:1, í undanúrslitum þar sem Rapid Vín skoraði sigurmarkið á þriðju mínútu í uppbótartíma.

Arnór lék allan tímann fyrir Rapid Vín en hann hefur verið óheppinn með meiðsli á tímabilinu og hefur misst af nokkrum leikjum þeirra.

Rapid Vín mætir Salzburg í úrslitaleiknum en liðið burstaði Admira í kvöld, 5:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert