Dortmund skaut Bayern út úr bikarnum

Ousmane Dembele og Pierre-Emerick Aubameyang fagna í kvöld.
Ousmane Dembele og Pierre-Emerick Aubameyang fagna í kvöld. AFP

Dortmund tryggði sér í kvöld farseðilinn í úrslitaleikinn í þýsku bikarkeppninni í knattspyrnu með 3:2 útisigri gegn meistaraliðinu Bayern München í frábærum leik.

Ousmane Dembele skoraði sigurmark Dortmund á 78. mínútu en Dortmund var 2:1 undir þegar um 20 mínútur voru til leiksloka.

Marco Reus kom Dortmund yfir á 19. mínútu en Bæjarar svöruðu með tveimur mörkum fyrir leikhlé sem þeir Javier Martinez og Mats Hummels skoruðu. Pierre-Emerick Aubameyang jafnaði metin á 69. mínútu áður en Dembele skoraði sigurmarkið með þrumuskoti.

Dortmund mætir Eintracht Frankfurt í úrslitaleiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert