Sex mörk Real Madrid í stórsigri

Liðsmenn Real Madrid fagna einu af mörkum sínum í kvöld.
Liðsmenn Real Madrid fagna einu af mörkum sínum í kvöld. AFP

Real Madrid komst upp að hlið Barcelona í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld með stórsigri gegn Deportivo La Coruna á útivelli, 6:2.

Barcelona hafði fyrr í kvöld sett pressu á Real Madrid með 7:1 sigri gegn Osasuna en Evrópumeistararnir stóðust pressuna og vel það og fögnuðu stórsigri þó svo að Cristiano Ronaldo, Sergio Ramos og Gareth Bale væru fjarri góðu gamni.

James Rodriguez skoraði tvö af mörkum Real Madrid og þeir Alvaro Morata, Lucas Vazquez, Isco og Casemiro skoruðu sitt markið hver.

Real Madrid og Barcelona eru með 78 stig en Real Madrid á leik til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert