Jóhannes aftur til Start

Jóhannes Harðarson.
Jóhannes Harðarson. Ljósmynd/ikstart.no

Jóhannes Harðarson er aftur kominn í herbúðir norska knattspyrnuliðsins Start sem féll úr norsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Jóhannes, sem lék með liði Start frá 2003 til 2008, hefur verið ráðinn inn í þjálfarateymi hjá unglingaliðum Start og þá mun hann starfa með öðrum félögum á svæðinu.

„Ég er mjög ánægður að fá tækifæri til að vinna fyrir Start aftur. Þessi staða hentar mér vel og ég get ekki beðið eftir því að byrja,“ segir Jóhannes á vef Start.

Eftir að Jóhannes hætti að spila með Start lék hann með liði Flekkerøy IL í neðri deildunum í Noregi og gerðist síðan þjálfari liðsins. Jóhannes var ráðinn þjálfari karlaliðs ÍBV í október árið 2014 en lét af störfum af persónulegum ástæðum í júní 2015.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert