Arsenal á eftir efnilegum framherja

Onyekuru í leik með Eupen.
Onyekuru í leik með Eupen. AFP

Arsenal og belgíska félagið KAS Eupen eru í viðræðum um kaup enska félagsins á Henry Onyekuru, 19 ára framherja. Þrátt fyrir ungan aldur skoraði Onyekuru 20 mörk fyrir Eupen á leiktíðinni.

Everton, Southampton og WBA hafa öll sýnt Onyekuru áhuga og vill framherjinn spila á Englandi. Klásúla er í samningi hans sem gerir félögum kleift að kaupa hann á 6,8 milljónir punda. 

Onyekuru hefur nú þegar hafnað Club Brugge og Anderlecht í Belgíu, ásamt því að skoska félagið Celtic var nálægt því að kaupa hann í janúar síðastliðnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert