Björn og Elmar sluppu við fall

Björn Daníel Sverrisson.
Björn Daníel Sverrisson. Ljósmynd/Heimasíða AGF

Björn Daníel Sverrisson og Theodór Elmar Bjarnason spiluðu báðir með AGF gegn Viborg í fallkeppni dönsku A-deildarinnar í knattspyrnu í dag. Svo fór að AGF vann 1:0 og tryggði sér í leiðinni áframhaldandi veru í efstu deild. Björn lék allan leikinn en Theodór var tekinn af velli skömmu fyrir leikslok.

Viborg fer þess í stað í umspil við Helsingör, sem leikur í B-deildinni, um sæti í efstu deild að ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert