Í hópnum ári á eftir áætlun

Samúel Kári Friðjónsson verður í fyrsta skipti í leikmannahópi Vålerenga í dag, þegar liðið mætir Lillestrøm í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, ári eftir að hann kom til félagsins frá Reading á Englandi.

Samúel Kári sleit krossband í hné á æfingu daginn áður en hann átti að spila sinn fyrsta leik fyrir Vålerenga í júlí 2016 en hefur nú jafnað sig vel af þeim meiðslum og lék með U21-landsliði Íslands í vináttulandsleik gegn Englandi fyrr í mánuðinum.

Vålerenga er í 7. sæti deildarinnar eftir þrettán umferðir og kæmist í fjórða sæti, allavega til morguns, með sigri í leiknum í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert