Balotelli áfram í Nice

Mario Balotelli ásamt forráðamönnum Nice í dag.
Mario Balotelli ásamt forráðamönnum Nice í dag. Ljósmynd/Skjaskot af ogcnice.com

Ítalski sóknarmaðurinn Mario Balotelli verður áfram í herbúðum Nice í Frakklandi á næstu leiktíð en hann framlengdi samning sinn við félagið í dag um eitt ár.

„Super Mario Balotelli verður áfram í Nice,“ segir á vef félagsins og forráðamenn þess augljóslega ánægðir með það en hann skoraði 17 mörk í 28 leikjum á síðustu leiktíð fyrir félagið er liðið lenti í 3. sæti og tryggði sér með því sæti í umspili um laust sæti í Meistaradeild Evrópu.

Sagt er að Balotelli hafi þurft að taka á sig launalækkanir til þess að dvelja áfram á frönsku rívíerunni og að hjartað hjá honum hafi ráðið fremur en buddan, en margir töldu eftir síðasta tímabil að kappinn myndi yfirgefa Nice. Svo fór þó ekki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert