Jafnt í Íslendingaslagnum í Svíþjóð

Sif Atladóttir er lykilmaður í vörn Kristianstad.
Sif Atladóttir er lykilmaður í vörn Kristianstad. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðskonurnar Sif Atladóttir hjá Kristanstad og Glódís Perla Viggósdóttir hjá Eskilstuna léku báðar í 1:1 jafntefli liðanna í dag á heimavelli Kristianstad.

Þær Sif og Glódís léku báðar allan leikinn en Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar lið Kristianstad.

Eskilstuna komst yfir í leiknum á 40. mínútu eftir sjálfsmark hjá Kristianstad en Therese Ivarsson jafnaði metin fyrir liðið á 55. mínútu og þar við sat, 1:1.

Eskilstuna hefur 20 stig í 2. sæti deildarinnar og er sjö stigum á eftir Linköping í toppsætinu. Kristianstad hefur 11 stig í 7. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert