Glæsilegt mark hjá Birni Bergmann

Björn Bergmann Sigurðarson skoraði mark Molde í dag.
Björn Bergmann Sigurðarson skoraði mark Molde í dag. Ljósmynd/Wu Zhi Zhao

Björn Bergmann Sigurðarson skoraði sitt sjöunda mark í norsku úrvalsdeildinni þegar hann skoraði mark Molde í 1:1 jafntefli við Strømsgodset í lokaleik 14. umferðar deildarinnar.

Björn Bergmann kom Molde yfir með glæsilegu marki á 38. mínútu þegar hann vippaði boltanum laglega yfir markvörð Strømsgodset. Heimamönnum tókst að jafna metin á 48. mínútu og þar við sat.

Björg Bergmann var tekinn af velli á 72. mínútu en Óttar Magnús Karlsson sat á varamannabekk Molde allan tímann. Eins og áður segir skoraði Björn Bergmann sitt sjöunda mark í deildinni á tímabilinu og hafa aðeins tveir leikmenn skorað fleiri mörk en Skagamaðurinn í deildinni.

Molde er í 5. sæti deildarinnar með 21 stig, er sjö stigum á eftir meisturunum í Rosenborg sem tróna á toppnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert