Paulinho í sigtinu hjá Börsungum

Paulinho í leik með brasilíska landsliðinu.
Paulinho í leik með brasilíska landsliðinu. AFP

Barcelona er í viðræðum við kínverska liðið Guangzhou Evergrande um kaup á brasilíska miðjumanninum Paulinho.

Tottenham seldi Brasilíumanninn til kínverska liðsins fyrir tveimur árum fyrir 10 milljónir punda en hann lék 45 úrvalsdeildarleiki með Lundúnaliðinu þau tvö tímabil sem hann lék með því.

Paulinho hefur fagnað sigri í kínversku deildinni með Guangzhou Evergrande þau tvö tímabil sem hann hefur leikið með því. Í samningi sem hann gerði við kínverska liðið getur félag keypt hann út fyrir 35 milljónir punda en ekki er víst að Börsungar séu tilbúnir að greiða svo mikið fyrir Brasilíumanninn, sem er 28 ára gamall.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert