Zlatan til Madrídar?

Zlatan Ibrahimovic er samningslaus.
Zlatan Ibrahimovic er samningslaus. AFP

Sænski sóknarmaðurinn Zlatan Ibrahimovic gæti endað í herbúðum spænska liðsins Atlético Madrid.

Spænska blaðið AS greinir frá þessu en Zlatan er án félags eftir að ljóst varð að Manchester United ætlar ekki bjóða honum annan samning.

Svíinn er að jafna sig eftir erfið hnémeiðsli sem hann varð fyrir í leik með Manchester United í Evrópudeildinni. Spænska blaðið segir að hann gæti farið til Atlético Madrid og unnið að því að ljúka endurhæfingu sinni hjá liðinu.

Reiknað er með að Zlatan verði búinn að ná sér um áramótin í kringum þann tíma sem félagaskiptabanni verður aflétt af Madrídarliðinu. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert