Gunnhildur og stöllur gera vel

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er að gera fína hluti í Noregi.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er að gera fína hluti í Noregi. mbl.is/Golli

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn fyrir Vålerenga sem hafði betur gegn Grand Bodø í norsku deildinni í knattspyrnu í dag, 2:0. Markvörðurinn Birna Kristjánsdóttir lék ekki með Grand Bodø vegna meiðsla.  

Þetta var fjórði sigur Vålerenga í síðustu fimm leikjum og er liðið í 7. sæti af tólf liðum með 14 stig eftir tíu leiki. Grand Bodø er í næstneðsta sæti með aðeins fimm stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert