Óvænt tap Djurgården á heimavelli

Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir þurftu að sætta sig …
Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir þurftu að sætta sig við tap í dag. mbl.is/Golli

Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir léku báðar allan leikinn fyrir Djurgården sem tapaði óvænt fyrir Örebro á heimavelli í sænsku A-deildinni í knattspyrnu í kvöld, 2:1. 

Með sigri hefði Djurgården farið upp í fjórða sæti og nálgast efstu lið deildarinnar, en það gekk ekki gegn Örebro sem fór upp úr fallsæti með sigrinum. Guðbjörg fékk að líta gula spjaldið á 81. mínútu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert