Félagsskipti Bonucci til Milan staðfest

Leonardo Bonucci er mættur til Milanó.
Leonardo Bonucci er mættur til Milanó. Ljósmynd/Heimasíða AC Milan

Ítalska knattspyrnufélagið AC Milan staðfesti í dag að miðvörðurinn Leonardo Bonucci hefði skrifað undir fimm ára samning við félagið en hann kemur til Milan frá Juventus. 

Félögin komust að samkomulagi um 42 milljóna evra kaupverð á Bonucci á föstudaginn var og nú hefur hann gengist undir læknisskoðun og samþykkt eigin kaup og kjör. 

Bonucci spilaði 227 leiki fyrir Juventus og skoraði í þeim 15 mörk. Hann hefur leikið 70 leiki fyrir landslið Ítalíu og skorað í þeim fimm mörk. 

Varnarmaðurinn Mattia De Sciglio hefur svo farið í hina áttina. Juventus kaupir De Sciglio á 12 milljónir evra og hann skrifar undir fimm ára samning við Juventus. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert