Knattspyrnumaðurinn Álvaro Morata er mættur til London þar sem hann mun fara í læknisskoðun fyrir félagsskipti sín frá Real Madrid til Chelsea. Chelsea kaupir Morata á um 70 milljónir punda og verða félagsskiptin væntanlega kynnt á allra næstu dögum.
Nú hefur Twitter-síða Real Madrid birt myndband af spænska framherjanum mæta á æfingasvæði Real Madrid þar sem hann kveður fyrrverandi liðsfélaga sína og þjálfarann, Zinedine Zidane.
Hér að neðan má sjá myndbandið.
👋🚶📽
— Real Madrid C.F. (@realmadriden) July 20, 2017
This is how Morata bid farewell to the Real Madrid players and coaching staff.
🇺🇸 #RMTour #HalaMadrid pic.twitter.com/8nq2fDnmPx