Árni fór meiddur af velli

Árni Vilhjálmsson
Árni Vilhjálmsson Ljósmynd/Twitter

Sóknarmaðurinn Árni Vilhjálmsson í liði Jönköpings Södra fór meiddur af velli á 21. mínútu í 2:0 tapi liðsins gegn Malmö í sænska fótboltanum í dag.

Árni hóf leikinn í fremstu víglínu en fór meiddur af velli í stöðunni 0:0 en Malmö skoraði bæði mörkin á stuttum kafla um miðbik seinni hálfleiks. Jönköpings hefur 15 stig í 12. sæti deildarinnar, jafn mörg og Sundsvall með þá Kristinn Frey Sigurðsson og Kristinn Steindórsson innan borðs.

Kristinn Freyr var skipt af velli á 66. mínútu í liði Sundsvall sem gerði 2:2 jafntefli við Halmstads í slag liðanna í neðri hluta deildarinnar. Kristinn Steindórsson er frá vegna meiðsla.

Kristinn Freyr í búningi Sundsvall.
Kristinn Freyr í búningi Sundsvall. Ljósmynd/Twitter
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert