Arnór á litla von um Meistaradeild

Arnór Ingvi Traustason.
Arnór Ingvi Traustason. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Arnór Ingvi Traustason á litla von á því að spila í riðlakeppni Meistaradeildarinnar með nýja liði sínu AEK frá Aþenu en liðið stendur illa að vígi í 3. umferð forkeppninnar.

Arnór er á láni hjá liðinu frá Rapid Vín, en var þó ekki í leikmannahópnum í kvöld í 2:0 tapi fyrir CSKA Moskvu á heimavelli í fyrri viðureigninni. AEK þarf nú að skora í það minnsta þrjú mörk til þess að komast áfram í umspil um sæti í riðlakeppninni.

Tapliðið fer hins vegar í umspil um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert