Benzema að gera nýjan fimm ára samning

Karim Benzema.
Karim Benzema. AFP

Fregnir frá Spáni herma að franski sóknarmaðurinn Karim Benzema muni gera nýjan fimm ára samning við Evrópu- og Spánarmeistara Real Madrid.

Benzema, sem er 29 ára gamall, á tvö ár eftir af samningi sínum við Madridarliðið en hann kom til þess frá franska liðinu Lyon árið 2009.

Zinedine Zidane þjálfari Real Madrid er ánægður með Frakkann en Benzema hefur skorað 49 mörk í öllum keppnum með liðinu frá því Zidane tók við þjálfun liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert