Neymar rauk út af æfingu (myndskeið)

Neymar ásamt Luis Suárez og Lionel Messi.
Neymar ásamt Luis Suárez og Lionel Messi. AFP

Kínverska ferðaskrifstofan Ctrip hefur staðfest að búið sé að aflýsa stuðningsmannadegi með brasilíska knattspyrnumanninum Neymar þar sem hann er í samningarviðræðum við Paris SG.

Neymar átti að hitta stuðningsmennina í Shanghai á mánudaginn og mun Ctrip endurgreiða öllum þeim sem höfðu keypt miða til að hitta stórstjörnuna.

Þessar fregnir koma í kjölfar á uppþoti sem átti sér stað á æfingu Barcelona-liðsins í Miami en þar lentu Neymar og einn af nýju leikmönnum Barcelona, Nelson Samedo, upp á kant hvor við annan sem endaði með því að Neymar rauk út af æfingunni.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert