Fulham kaupir fyrirliða Braga

Rui Fonte er orðinn leikmaður Fulham.
Rui Fonte er orðinn leikmaður Fulham. Ljósmynd/Fulham

Enska B-deildarfélagið Fulham hefur keypt Rui Fonte, fyrirliða Braga. Fonte skrifar undir þriggja ára samning við Fulham. Fonte gekk í raðir Braga fyrir síðustu leiktíð og var hann markahæsti leikmaður liðsins með 11 mörk. 

Fonte hefur leikið með öllum yngri landsliðum Portúgals, en hann var um tíma í herbúðum Arsenal og Crystal Palace. 

Braga mætir einmitt Íslandsmeisturum FH í Kaplakrika síðar í kvöld í Evrópudeildinni í knattspyrnu og eins og gefur að skilja verður Fonte ekki með portúgalska liðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert