Suárez frá næstu vikurnar

Luis Suárez liggur meiddur eftir í gærkvöld.
Luis Suárez liggur meiddur eftir í gærkvöld. AFP

Luis Suárez, leikmaður Barcelona, verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir gegn Real Madrid í meistaraleiknum á Spáni í gær.

Suárez meiddist þá á hné og verður að sögn frá í 4-5 vikur vegna þess. Hann mun missa af landsleikjum Úrúgvæ gegn Argentínu og Paragvæ sem eru framundan og leikjum Barcelona gegn Real Betis, Alaves, Espanyol og Getafe.

Barcelona tapaði meistaraleiknum fyrir Real Madrid, samtals 5:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert