WBA hefur áhuga á varnarmanni Tottenham

Kevin Wimmer í leik með Tottenham.
Kevin Wimmer í leik með Tottenham. AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið West Bromwich Albion hefur áhuga á að fá Kevin Wimmer til félagsins frá Tottenham. Wimmer gæti gengið í raðir West Brom ef Jonny Evans fer til Manchester City. 

West Brom hafnaði 18 milljón punda tilboði frá Manchester City í Jonny Evans í vikunni, en City gæti hækkað tilboðið á næstunni. 

Wimmer hefur leikið tvo landsleiki fyrir Austurríki og hefur hann leikið með Tottenham síðan í maí 2015 og spilað 14 deildarleiki á tveimur leiktíðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert