Juventus kaupir Matuidi af PSG

Blaise Matuidi er orðinn leikmaður Juventus.
Blaise Matuidi er orðinn leikmaður Juventus. Ljósmynd/Juventus

Ítalska knattspyrnufélagið Juventus hefur gengið frá kaupum á franska miðjumanninum Blaise Matuidi frá Paris Saint-Germain á 30,5 milljónir evra. Matuidi skrifar undir þriggja ára samning við Juventus.

Matuidi vann frönsku deildina fjórum sinnum með PSG eftir að hann gekk í raðir félagsins frá Saint-Etienne árið 2011. Matuidi er níundi leikmaðurinn sem Juventus fær til sín í sumar. 

Matuidi hefur leikið 52 landsleiki fyrir Frakka og skorað í þeim átta mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert