Kjartan og félagar komust ekki á toppinn

Kjartan Henry Finnbogason
Kjartan Henry Finnbogason Ljósmynd/Horsens

Kjartan Henry Finnbogason lék allan tímann í framlínu Horsens sem gerði markalaust jafntefli við Álaborg á heimavelli sínum í dönsku A-deildinni í knattspyrnu í dag. 

Horsens hefði farið upp fyrir Nordsjælland og í toppsætið með sigri, en liðið er nú í öðru sæti með 11 stig eftir sex leiki. Bröndby og Mitdjylland geta farið upp fyrir Horsens, takist þeim að vinna leiki sína um helgina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert