Jafnt í fyrsta leik Guðlaugs í byrjunarliði

Guðlaugur Victor lék allan leikinn í dag.
Guðlaugur Victor lék allan leikinn í dag. Ljósmynd/Zürich

Guðlaugur Victor Pálsson var í fyrsta skipti í byrjunarliði Zürich sem gerði markalaust jafntefli við Young Boys í svissnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Guðlaugur lék allan leikinn. 

Zürich er í toppsæti deildarinnar með 11 stig eftir fimm leiki en Basel á leik til góða og getur skotist á toppinn með sigri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert