Haukur og félagar upp í þriðja sætið

Haukur Heiðar Hauksson
Haukur Heiðar Hauksson Ljósmynd/AIK

Haukur Heiðar Hauksson lék allan leikinn fyrir AIK sem vann öruggan 3:0-útisigur á Östersund í sænsku A-deildinni í knattspyrnu í dag. Með sigrinum fór AIK upp í 35 stig og í þriðja sæti deildarinnar. 

Höskuldur Gunnlaugsson lék fyrri hálfleikinn og Tryggvi Hrafn Haraldsson síðustu sjö mínúturnar fyrir Halmstad sem tapaði fyrir Djurgården, 2:1 á útivelli. Tryggvi var að leika sinn fyrsta leik fyrir liðið eftir að hafa gengið í raðir þess frá ÍA. Halmstad er í næstneðsta sæti með 13 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert