María gæti farið til Arsenal

María Þórisdóttir.
María Þórisdóttir. Ljósmynd/Sindri Sverrisson

Jærbladet í Noregi greindi frá því í dag að enska félagið Arsenal hafi áhuga á Maríu Þórisdóttur. María leikur með norska landsliðinu og Klepp í Noregi, en hún er dóttir Þóris Hergeirssonar, þjálfara norska kvennalandsliðsins í handknattleik. 

María lék tvo af þremur leikjum Noregs á Evrópumótinu í Hollandi í sumar eftir að hafa jafnað sig á mjög erfiðum meiðslum. 

Arsenal hafnaði í þriðja sæti ensku deildarinnar á síðustu leiktíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert