Inter tapaði fyrstu stigunum

Mauro Icardi er hér að tryggja Inter jafntefli í kvöld.
Mauro Icardi er hér að tryggja Inter jafntefli í kvöld. AFP

Inter tapaði í kvöld sínum fyrstu stigum í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Bologna á útivelli.

Simone Verdi kom Bolgona yfir á 32. mínútu en Mauro Icardi bjargaði stigi fyrir Inter þegar hann jafnaði metin úr vítaspyrnu 13 mínútum fyrir leikslok.

Þrátt fyrir jafnteflið komst Inter á topp deildarinnar. Liðið hefur 13 stig eftir fimm leiki en Juventus og Napoli geta skotist fram úr Inter annað kvöld. Þau eru bæði með 12 stig en verða bæði í eldlínunni á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert