Zinedine Zidane, þjálfari Spánar- og Evrópumeistara Real Madrid í knattspyrnu, greindi frá því á fréttamannafundi í dag að hann hafi skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Madridarliðið.
Eftir að hafa stýrt B-liði Real Madrid tók hann við starfi Rafael Benítez sem aðalþjálfari Real Madrid í janúar í fyrra og varð þar með 11. þjálfarinn á þeim 12 árum sem Florentino Perez hefur setið í forsetastól hjá félaginu.
Undir stjórn Zidane hefur Real Madrid landað tveimur Evrópumeistaratitlum, einum Spánarmeistaratitli og hefur unnið Meistarakeppni Spánar og Meistarakeppni Evrópu.