Atli tekur við sænsku liði

Atli Eðvaldsson ásamt Þorgrími Þráinssyni þegar hann þjálfaði Valsmenn fyrir …
Atli Eðvaldsson ásamt Þorgrími Þráinssyni þegar hann þjálfaði Valsmenn fyrir nokkrum árum. mbl.is/Eggert

Atli Eðvaldsson, fyrrverandi þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur verið ráðinn þjálfari sænska C-deildarliðsins Kristianstad.

Atli tekur við þjálfun liðsins af Joakim Persson sem var rekinn frá störfum vegna slaks árangurs liðsins en liðið er í 9. sæti af 14 liðum í deildinni.

Einn Íslendingur leikur með liði Kristianstad en það er Bjarni Mark Antonsson sem hefur spilað með KA og Fjarðabyggð.

Atli hefur víða komið við á þjálfaraferli sínum. Hann hefur þjálfað HK, ÍBV, Fylki, KR, Þrótt Reykjavík, Val, Reyni Sandgerði og Aftureldingu sem var síðasta liðið sem hann stýrði árið 2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert